Færsluflokkur: Bloggar

Íslenska Villikindin.

Afhverju þarf að deyða þessar blessuðu kindur, sem hafa lifað í harðindum í íslenskri náttúru í mörg ár?

Afhverju þarf þá að skerast í leikinn og lóga þessum kindum?

Þær ástæður sem ég hef heyrt, að þær eigi ekki eftir að  lifa og við vorkennum þeim aða lifa svona erfiðu lífi, eru bara einum of fjarstæðukenndar. Þær hafa lifað hingað til, svo þær ættu nú að geta lifað lengur.

Ég bara skil þetta ekki, algjör óþarfi. Það á bara að leyfa þeim að lifa áfram, allaveganna hef ég ekki heyrt góða ástæðu gegn því, þannig að ég get alveg haft rangt fyrir mér.

En ég vil nú samt fá að heyra í ykkur hinum, hvað ykkur finnst um þetta, hvað þið hafið heyrt og hvað þið vitið um þetta mál.

Daníel kveður.


Villandi fréttir

Ég vil byrja á því að segja að ég er fulllur samúðar í garð aðstandenda stúlkunar. 

Mér finnst þetta alveg óþolandi hvernig þessu er háttað. Margar fréttir víða að segja frá því hve skaðleg svínaflensan er og svona. En hún er nú bara ósköp venjuleg flensa en það er samt munur, og þess vegna líta margir á þetta sem mjög hættulegt fyribrigði. Ég er ekki að segja að þetta sé alveg meinlaust en það sem ég er að reyna að segja er að þessi stúlka sem lést, hefur greinilega ekki verið vel hraust, og fólk sem er ekki vel hraust Á að hafa áhyggjur. En ég hef lesið fréttir sem eru villandi, allaveganna sýnist mér það, og segir frá því að einhver hafi dáið eða er illa haldinn á sjúkrahúsi, af völdum Svínaflensunnar. Oftast er samt það tekið skýrt fram að manneskjan hafi verið veik fyrir og verið þá alveg berskjalda gegn flensunni.

Ég vona nú samt að landsmenn fari varlega og sniðgangi smitleiðir að mestu leyti þegar fólk sem er berskjalda gegn flensunni á í máli.

 

Með þakkir fyrir lesturinn og vonir um hreinskilnar athugasemdir,

Daníel Ingi


mbl.is Fyrsta dauðsfallið hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Daníel Ingi Sigþórsson
Daníel Ingi Sigþórsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband